18 feb. 2008Stjörnuleikur NBA deildarinnar fór fram í nótt í New Orleans. Lið Austurdeildarinnar sigraði í spennandi leik [v+]http://www.nba.com/games/20080217/ESTWST/gameinfo.html[v-]134-128[slod-] [v+]http://www.nba.com/playerfile/lebron_james/index.html[v-]LeBron James[slod-] var valinn besti leikmaðurinn en hann skoraði 27 stig, tók 8 fráköst og sendi 9 stoðsendingar í leiknum. Ray Allen var stigahæstur með 28 stig á aðeins 19 mínútum. Hjá Vesturdeildarliðinu voru Carmelo Anthony, Amare Stoudemire og Brandon Roy með 18 stig en heimamaðurinn Chris Paul skoraði 16 stig og sendi 14 stoðsendingar.