16 feb. 2008Að loknum drættinum í morgun hófst Hannes S. Jónsson formaður KKÍ handa við að koma leikjaplani íslensku liðanna á hreint ásamt forsvarsmönnum hinna liðanna. Því verkefni er nú lokið og ljóst að íslensk landslið eru að leika alla miðvikudaga og laugardaga frá 27. ágúst til 20. september í haust. Planið lítur annars þannig út hjá karlaliðinu. 10. september Ísland – Danmörk 13. september Holland – Ísland 17. september Ísland – Svartfjallaland 20. september Austurríki – Ísland Hjá kvennaliðinu er planið á þessa leið. 27. ágúst Ísland – Sviss 30. ágúst Holland – Ísland 3. september Ísland – Slóvenía 6. september Írland – Ísland 10. september Svartfjallaland – Ísland