14 feb. 2008KKÍ hefur ráðið Einar Árna Jóhannsson í starf mótastjóra sambandsins. Einar Árni er öllum körfuboltaunnendum hér á landi vel kunnur, en hann hefur um langt árabil verið þjálfari, bæði hjá Njarðvík og KKÍ. Nú í vetur hefur hann þjálfað 1. deildarlið Breiðabliks með góðum árangri. Einar Árni hefur mikinn metnað fyrir körfuboltann á Íslandi og væntir stjórn KKÍ mikils af honum. Einar kemur til starfa í byrjun júní. Núverandi mótastjóri, Oddur Jóhannsson mun láta af störfum 1. maí nk. f.h. KKÍ Hannes S. Jónsson formaður KKÍ