14 feb. 2008Aganefnd fundaði í gær og kvað upp úrskurð í nokkrum málum. Allir dómarnir hljóðuðu upp á eins leiks bann. Valur Sigurðsson, leikmaður Fjölnis og Nick Mabbutt, leikmaður FSu, fengu hvor um sig eins leiks bann vegna atviks sem kom upp í Unglingaflokki karla. Þorbergur Hreiðarsson, leikmaður Þórs frá Þorlákshöfn, fékk eins leiks bann vegna atviks sem kom upp í leik gegn Reyni Sandgerði á dögunum. Sindri Kárason, leikmaður Fjölnis og Bjarni Karlsson, þjálfari Fjölnis í Drengjaflokki, fengu báðir eins leiks bann vegna atviks sem kom upp í deildarleik í A-riðli Drengjaflokks gegn Haukum. Allir aðilar taka út leikbannið í þeim flokki sem atvikin komu upp í og tekur úrskurðurinn gildi á hádegi í dag.