11 feb. 2008Þrír leikir voru í Iceland Express deild karla í gær. Þessum leikjum þurfti að fresta vegna veðurs en þeir áttu upphaflega að fara fram á fimmtudag og föstudag. Þór Akureyri sigraði Stjörnuna í eftir jafnan leik [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002684_16_2[v-]89-84[slod-]. Þetta var mikilvægur sigur fyrir Þór en með sigrinum komust þeir upp fyrir Stjörnuna í 9. sæti deildarinnar. Í Stykkishólmi sigraði Snæfell lið Hamars [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002684_16_3[v-]98-80[slod-]. Grindavík vann svo Tindastól nokkuð örugglega á heimavelli [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002684_16_4[v-]108-78[slod-].