9 feb. 2008FIBA Europe tilkynnti á dögunum leikmenn ársins hjá körlum og konum. Andrei Kirilenko var valinn leikmaður ársins hjá körlunum og Anete Jekabsone-Zogota var valin best hjá konunum. Kirilenko lék frábærlega með í Evrópukeppni landsliða síðastliðið haust og hjálpaði Rússum að tryggja sér Evrópumeistaratitilinn. Hann var valinn besti leikmaður Evrópukeppninnar. Kirilenko var einnig einn af lykilleikmönnum Utah Jazz í NBA deildinni í Bandaríkjunum.
Anete Jekabsone-Zogota var lykilleikmaður í landsliði Letta á árinu og hjálpaði liðinu að komast í undanúrslit Evrópukeppni landsliða. Hún lék einnig frábærlega með liði Dynamo Moskvu á liðnu ári og leiddi liðið meðal annars til sigurs í Evrópukeppni félagsliða.