8 feb. 2008Enn er veðrið að gera körfuboltamönnum erfitt fyrir og því hefur þurft að fresta fleiri leikjum í dag. Leik Þórs Akureyri og Stjörnunnar í Iceland Express deild karla hefur verið frestað. Leikurinn mun fara fram sunnudaginn 10. febrúar klukkan 16:00 í Síðuskóla. Í 1. deild kvenna var leik Skallagríms og Tindastóls frestað. Ný tímasetning verður tilkynnt síðar. Einnig þurfti að fresta leik Hrunamanna og KFÍ í bikarkeppni 9. flokks kvenna. Leikurinn hefur verið settur á föstudaginn 15. febrúar klukkan 18:00.