7 feb. 2008Tveimur leikjum hefur verið frestað vegna ófærðar á vegum. Leikur Grindavíkur og Tindastóls getur ekki farið fram í kvöld þar sem Tindastólsmenn eru veðurtepptir. Leikurinn mun fara fram sunnudaginn 10. febrúar klukkan 19:15. Leikur Snæfells og Hamars sem átti að vera í kvöld hefur verið færður fram á sunnudag vegna þess að ófært er úr Hveragerði. Leikirnir eru settir á sunnudaginn vegna þess að dómarar eru ekki lausir á morgun og laugardag.