4 feb. 2008Næsta beina útsending frá Iceland Express deild karla verður á fimmtudaginn þegar Njarðvík tekur á móti KR. Leikur Njarðvíkur og KR átti upphaflega að vera á föstudag en var færður fyrir beina útsendingu á SÝN. Fyrir vikið verða fimm leikir á dagskrá á fimmtudag og einn á föstudag. Bein útsending hefst klukkan 19:15