3 feb. 2008Í kvöld kemur í ljós hvaða lið fara í úrslit í Lýsingarbikarnum og mæta þar annars vega Haukum í Lýsingarbikar kvenna og Snæfelli í Lýsingarbikar karla. Í Borgarnesi eigast við Skallagrímur og Fjölnir í Lýsingarbikar karla og hefst leikurinn klukkan 19:15. Það er mikið í húfi hjá liðunum, Fjölnir hefur einu sinni leikið til úrslita í bikarkeppninni en það var árið 2005 en Skallagrímur hefur aldrei náð að fara í úrslitaleik keppninnar. Í Grindavík er nágrannaslagur þegar Grindavík og Keflavík mætast. Bæði þessi lið hafa oft leikið til úrslita og er Keflavík eitt sigursælasta lið sögunnar í kvennakörfuboltanum. Leikir þessara liða í vetur hafa verið stórskemmtilegir og því má búast við hörkuleik í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15