3 feb. 2008Fjölnir og Grindavík bættust í hóp þeirra liða sem leika til úrslita í Lýsingarbikarnum. Fjölnir lagði Skallagrím í Borgarnesi [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002815_4_2[v-]83:85[slod-] og mun leika til úrslita gegn Snæfelli í Lýsingarbikar karla. Grindavík vann Keflavík í Grindavík [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002824_3_1[v-]66:58[slod-] og mun leika til úrslita gegn núverandi bikarmeisturum Hauka í Lýsingarbikar kvenna. Úrslitaleikirnir fara fram í Laugardalshöllinni sunnudaginn 24. febrúar.