
2 feb. 2008Í dag er sannkallaður stórleikur á milli Njarðvíkur og Snæfells í undanúrslitum í Lýsingarbikarnum. Leikir þessara liða í gegnum tíðina hafa gjarnan verið mikil skemmtun og má búast við hörkuleik í dag enda sjálfur úrslitaleikurinn í húfi sem er stærsti einstaki leikurinn á tímabilinu. Leikurinn hefst klukkan 15:00


