25 jan. 2008Leik Skallagríms og Tindastóls í 1. deild kvenna hefur verið frestað vegna slæms veðurs. Slæmt veður hefur verið á landinu í dag og því hafa margir verið að fylgjast með færð á vegum vegna leikja kvöldsins. Eins og staðan er núna þá er leikur Skallagríms og Tindastóls eini leikurinn sem frestað hefur verið. Vonandi mun það ekki breytast en það mun skýrast á næstu klukkustundum hvort fært verði í aðra leiki kvöldsins.