23 jan. 2008Í kvöld fara fram tveir leikir í Iceland Express deild kvenna og er annar leikjanna Iceland Express leikurinn þar sem áhorfendum gefst kostur á að vinna ferð fyrir tvo með Iceland Express. Iceland Express leikur kvöldsins er leikur Keflavíkur og Grindavíkur sem fer fram í Keflavík og hefst klukkan 19:15. Áhorfendum gefst kostur á að vinna sér ferð fyrir tvo til einhvers af áfangastöðum Iceland Express. Hinn leikur kvöldsins er viðureign Fjölnis og KR sem fer fram í Grafarvogi og hefst klukkan 19:15