22 jan. 2008Nú er körfuboltablaðið Karfan komið út. Blaðið fjallar um íslenskan körfubolta og er ókeypis. Í blaðinu er umfjöllun um öll liðin í Iceland Express deildum karla og kvenna. Einnig eru upplýsingar um liðin í 1. deild karla að finna í blaðinu ásamt fjölda af myndum og öðru efni. Blaðinu verður dreift í íþróttahús liðanna í efstu deildum karla og kvenna á næstu dögum.