19 jan. 2008Stjörnuleikir KKÍ fóru fram í dag í Keflavík. Dagurinn tókst vel en báðir leikirnir voru fullir af tilþrifum frá bestu leikmönnum landsins. Fyrri leikurinn var á milli kvennalandsliðsins og úrvalsliðs Iceland Express. Iceland Express liðið hafði frumkvæðið í leiknum og landaði sigri með 100 stigum gegn 78. Monique Martin var stigahæst hjá Iceland Express liðinu en Signý Hermannsdóttir skoraði mest fyrir landsliðið. Karlaleikurinn á milli landsliðsins og Iceland Express liðsins fór fjörlega af stað með glæsilegum troðslum og þriggja stiga skotum. Landsliðið leiddi mestan hluta leiksins en úrvalsliðið náði að komast yfir á lokamínútunum sem voru æsispennandi. Iceland Express liðið komst yfir 135-136 þegar lítið var eftir af leiknum. Landsliðið náði þó boltanum þegar nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum og rauk fram í hraðaupphlaup þar sem brotið var á Hlyn Bæringssyni þegar lokaflautan gjall. Hlynur fékk því tvö vítaskot og setti þau bæði örugglega ofan í. Íslenska landsliðið sigraði því 136-137. Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur, gerði sér lítið fyrir og sigraði í troðslukeppninni. Ólafur fékk harða samkeppni frá mótherjum sínum og fengu áhorfendur í Keflavík að sjá mörg glæsileg tilþrif. Tilþrif Ólafs þóttu þó best og að launum hlaut hann sigurverðlaunin.