18 jan. 2008Á morgun verður sannkallaður Stjörnudagur þegar íslensku A-landslið karla og kvenna mæta bestu erlendu leikmönnum sem leika hér á landi ásamt nokkrum íslenskum leikmönnum. Klukkan 13:30 leikur kvennalandsliðið við úrvalslið Jóns Halldórs Eðvaldssonar. Á milli leikja verður opnuð sala á landsliðsbúningunum sem eru mjög glæsilegir. Þeir eru á sérstöku tilboðsverði í kringum leikina. Treyjan á 3000 kr og Buxur á 3000 kr. Settið er selt á 5000 kr. Klukkan 15:30 leikur karlalandsliðið við úrvalslið Benedikts Guðmundssonar. Í hálfleik á karlaleik verður Troðslukeppni þar sem er til mikils að vinna en ákveðið hefur verið að hafa 100.000 í verðlaun fyrir troðslukóng Stjörnudagsins. Þeir sem hafa þegar skráð sig eru: Jonathan Griffin - Grindavík Cedric Isom - Þór Akureyri BA Walker - Keflavík Ólafur Ólafsson - Grindavík Hörður Vilhjálmsson - Njarðvík Tahirou Sani - ÍR Everard Bartlett - Hetti Það er enn hægt að skrá sig en það er hægt [p+]kki@kki.is[p-]hér[slod-]