17 jan. 2008Á laugardaginn kemur verða æfingaleikir fyrir landslið karla og kvenna. Leikirnir fara fram í Keflavík. Jón Halldór Eðvaldsson þjálfari kvennaliðs Keflavíkur hefur valið 12 leikmenn sem munu etja kappi við A-landslið kvenna á laugardag klukkan 13:30 Jón valdi eftirtalda leikmenn: Pálína Gunnlaugsdóttir - Keflavík Rannveig Randversdóttir - Keflavík Telma B. Fjalarsdóttir - Haukar Íris Sverrisdóttir - Grindavík Ólöf Helga Pálsdóttir - Grindavík Þórunn Bjarnadóttir - Valur Kesha Watson - Keflavík Monique Martin - KR Tiffany Roberson - Grindavík Kiera Hardy - Haukum La K Barkus - Hamar Molly Peterman - Valur Benedikt Guðmundsson þjálfari karlaliðs KR hefur valið sitt úrvalslið sem mætir A-landsliði karla á laugardag klukkan 15:30 Benedikt valdi eftirtalda leikmenn: BA Walker - Keflavík Tommy Johnson - Keflavík Jonathan Griffin - Grindavík Justin Shouse - Snæfell Dimitar Karadzovski - Stjörnunni Cedric Isom – Þór Akureyri Damon Bailey - Njarðvík Joshua Helm - KR Óðinn Ásgeirsson – Þór Akureyri Fannar Helgason - Stjarnan Darri Hilmarsson - KR Í hálfleik á karlaleik verður troðslukeppni en nú þegar hafa 8 leikmenn skráð sig til leiks svo það má búast við einhverjum skemmtilegum tilþrifum. Eins og áður hefur komið fram þá ætlar karfan.is að sýna beint frá leikjunum og troðslukeppninni ef netsamband næst og heldur.