17 jan. 2008Nú er búið að úrskurða í máli Hauka B gegn UMFG B vegna leiks sem liðin léku í 2. deild karla í haust. Haukar B kærðu lið Grindavíkur B fyrir að hafa teflt fram ólöglegu liði í leiknum. Lögðu Haukar fram gögn þessu til sönnunar og nú hefur dómur verði kveðinn upp. Dómsorð eru eftirfarandi: Ungmennafélagið Grindavík telst hafa tapað leik gegn Haukum B í II. deild karla, B-riðli, sem fram fór 15. desember 2007 með stigatölunni 0-20.