16 jan. 2008Ákveðið hefur verið að fresta tveimur leikjum sem áttu að vera í kvöld vegna veðurs. Vegna slæmrar færðar á Hellisheiðinni og í Þrengslum hefur verið ákveðið að fresta leik KR og Hamars í Iceland Express deild kvenna um einn sólarhring. Leikurinn verður leikinn annað kvöld klukkan 20:00 í DHL-Höllinni. Einnig var ákveðið að fresta leik Hamars/Þórs og ÍR í bikarkeppni 10. flokks karla um viku.