16 jan. 2008Eins og áður hefur komið fram þá verður dregið í undanúrslit í Lýsingarbikar karla og kvenna í dag. Frétt gærdagsins um að Ólafur Ragnar myndi heiðra okkur með nærveru sinni hefur vakið mikla athygli en nú er komið í ljós að hann getur því miður ekki mætt en við fengum Pétur Jóhann Sigfússon í staðinn. Pétur mun því draga liðin upp úr skálinni góðu. Auddi og Sveppi hafa þegar dregið í Lýsingarbikarnum og Pétur Jóhann vildi ekki vera minni maður og tók vel í að draga að þessu sinni. Dregið verður á Hilton hótelinu klukkan 13:30 og verður hægt að fylgjast með í beinni útsendingu í þættinum [v+]http://www.x977.is/[v-]Mín Skoðun[slod-]