15 jan. 2008Spennan magnast í Lýsingarbikarnum og nú er komið að því að draga í 4-liða úrslit karla og kvenna. Það verður dregið á morgun miðvikudag 16.janúar á Hilton hótelinu klukkan 13:30. Þau lið sem verða í skálinni góðu eru hjá körlum: Fjölnir, Skallagrímur, Njarðvík og Snæfell Hjá konum: Keflavík, Haukar, Fjölnir og Grindavík. Ólafur Ragnar mum heiðra körfuboltafólk með nærveru sinni og mun sjá um draga úr skálinni góðu.