11 jan. 2008Í dag kynnti ÍSÍ úthlutun úr afrekssjóði til sérsambandanna og fékk KKÍ 4.4 milljónir. Þetta er svipað og KKÍ hefur fengið síðustu ár. Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ sagði í samtali við fjölmiðla að í heildina væri verið að úthluta um 60 milljónum en það er einungis 10% miðað við óskir sérsambandanna.