9 jan. 2008Eins og áður hefur komið fram hafa FIBA dómarar okkar verið að fá nokkur spennandi verkefni og í janúar verða Kristinn Óskarsson og Sigmundur Már Herbertsson á ferðinni. Kristinn Óskarsson er í Frakklandi sem stendur og dæmir þar í kvöld leik USO Basket og MiZo Pécs frá Ungverjalandi í Meistaradeild kvenna. Á morgun dæmir Kristinn svo leik US Valenciennes og pólska liðsins Lotos Gdynia í sömu keppni. Sigmundur dæmir síðar í mánuðinum.