8 jan. 2008Aðalstjórn ÍR valdi á dögunum Hreggvið Magnússon sem íþróttamann ÍR árið 2007. Hreggviður var lykilmaður í liði ÍR sem varð meðal annars bikarmeistari á síðasta ári. Hreggviður var einnig valin í landsliðið í sumar og lék fyrir Ísland á Smáþjóðaleikunum þar sem Ísland vann gullverðlaun. Hreggviður er vel að þessarri viðurkenningu kominn og óskar KKÍ honum til hamingju.