5 jan. 2008Í dag fara fram nokkrir leikir í Iceland Express deildum karla og kvenna. Í Iceland Express deild karla eru tveir leikir: Leikur Snæfells og Njarðvíkur sem fer fram í Stykkishólmi verður í beinni útsendingu á RÚV og hefst leikurinn klukkan 16:00 Í Seljaskóla tekur ÍR á móti Þór frá Akureyri og hefst leikurinn klukkan 16:00 Í Iceland Express deild kvenna eru þrír leikir: Keflavík fær Fjölni í heimsókn og hefst leikurinn klukkan 16:00 Í Grindavík mætast heimastúlkur og Hamar og hefst leikurinn klukkan 16:00 Á Ásvöllum taka svo Haukar á móti KR klukkan 17:00