4 jan. 2008Um helgina fer fram Actavismót Hauka að Ásvöllum í Hafnarfirði. Mótið hefur verið haldið undanfarin ár og það hefur þótt takast vel. Í ár er metþátttaka á mótinu en um 70 lið eru skráð í mótið. Leikið verður á fullu bæði laugardag og sunnudag en hlé verður gert á laugardeginum á meðan leikur Hauka og KR fer fram í Iceland Express deild kvenna. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og er öllum þátttakendum á mótinu boðið á leikinn. Körfuknattleiksdeild Hauka vill koma á framfæri þökkum til Actavis, sem hefur styrkt körfuboltann af miklum krafti. Hægt verður að fylgjast með gangi mála um helgina á heimasíðu [v+]http://www.haukar-karfa.is/[v-]Hauka[slod-]. [v+]http://www.haukar-karfa.is/Leikjaplan_Actavismot08.pdf[v-]Leikjaplan Actavismótsins[slod-].