3 jan. 2008Tveir nýir A-dómarar fyrir áramót Dómaranefnd KKÍ flutti tvo dómara upp í A-hóp á fyrri hluta þessa tímabils. Konráð Jóhann Brynjarsson var færður upp um hóp þann 11. nóvember síðastliðinn, en Hákon Hjartarson þann 13. desember. A-dómarar eru því 17 talsins núna, en þó ber að nefna að Gísli Páll Pálsson verður að öllum líkindum frá vegna meiðsla út leiktíðina.