30 des. 2007Vegna veðurs hafa allar fyrirhugaðar æfingar hjá strákalandsliðunum í dag verið felldar niður. Veðrið hefur verið mjög slæmt í morgun en er eitthvað að ganga niður þannig að æfingin hjá U-16 ára liði stúlkna sem er á dagskrá í Vodafonehöllinni ( Valsheimilinu ) í dag klukkan 15:00 verður, en þær stúlkur sem ekki komast geta haft samband við Rob Hodgson þjálfara í síma 8491898 Æfingar hjá U-18 ára liði stúlkna eru einnig í gangi í dag.