29 des. 2007Kjör á íþróttamanni ársins fór fram í gær og voru körfuknattleiksáhugamenn spenntir yfir því að sjá hvernig okkar manni myndi ganga. Jón Arnór Stefánsson hefur verið að ná frábærum árangri á undanförnum árum í sinni grein sem er ein sú allra stærsta og vinsælasta í veröldinni. Því miður höfum við ekki fengið að sjá mikið frá evrópskum körfubolta og því eru margir hér á landi sem gera sér enga grein fyrir þeim stórkostlega árangri sem Jón Arnór hefur náð. Félag Jóns Arnórs, Lottomatica Roma er í toppbaráttu í ítölsku deildinni og svo er liðið einnig í Meistaradeild Evrópu sem er ein af stærstu og sterkustu deildum heims og þá ekki bara í körfubolta heldur yfir allflestar íþróttagreinar. Það verður alltaf erfitt að velja íþróttamann ársins og það verður alltaf umdeilt, sama hvaða form verður á valinu. Allt það glæsilega íþróttafólk sem var á topp 10 að þessu sinni eru glæsilegir fulltrúar og áttu eflaust nokkrir þeirra fullkomlega skilið að vera hærra á listanum eða jafnvel á toppnum. Við óskum Jóni Arnóri og hans fjölskyldu til hamingju með þennan frábæra árangur Jóns og bróðir hans því Ólafur Stefánsson varð í öðru sæti. Einnig er vert að minnast á þá glæsilegu umgjörð sem var á hófinu og er greinilegt að samtök íþróttafréttamanna eru að leggja mikla vinnu í þetta sem og ÍSÍ og aðrir sem að þessu koma. Öðrum íþróttamönnum sem voru á listanum óskum við til hamingju og þá sérstaklega Margréti Láru sem er íþróttamaður ársins 2007.