28 des. 2007Þann 27. desember sl. voru krýndir íþróttamenn Hveragerðis og fór athöfnin fram í Listasafni Árnesinga. Körfuknattleiksfólkið Jóhanna Björk Sveinsdóttir og Svavar Páll Pálsson úr Hamri voru valin íþróttamenn Hveragerðis fyrir árið 2007. Óskum þeim báðum innilega til hamingju með þennan mikla heiður.