27 des. 2007Helena Sverrisdóttir leikmaður Hauka og TCU háskólans var í kvöld kjörin íþróttamaður Hafnarfjarðar. Helena var lykilleikmaður í liði Hauka sem unnu alla titla á leiktímabilinu 2006-2007 og var auk þess lykilleikmaður með landsliðinu. Helena var á dögunum útnefnd körfuknattleikskona ársins af stjórn KKÍ. Helena er aðeins annar körfuknattleiksmaðurinn sem er útnefndur Íþróttamaður Hafnarfjarðar en Pálmar Sigurðsson var Íþróttamaður Hafnarfjarðar 1984 og 1988. Óskum Helenu til hamingju með þennan frábæra heiður.