20 des. 2007Stjórn KKÍ valdi þau Helenu Sverrisdóttur, Haukum/TCU College og Jón Arnór Stefánsson Lottomatica Roma, körfuknattleikskonu og körfuknattleiksmann ársins 2007. Jón Arnór Stefánsson: Lottomatica Roma Bakvörður 25 ára 196 cm Fljótlega á árinu 2007 skipti Jón um lið er hann fór til Ítalíu á ný þar sem hann samdi við [v+]http://www.virtusroma.it/[v-]Lottomatica Roma[slod-]. Jasmin Repesa þjálfari Roma gaf það út að Jón væri frábær liðsauki fyri félagið og vænti mikils af honum. Það er óhætt að segja að Jón hafi leikið frábærlega á árinu með Roma. Jón er ekki aðeins í því hlutverki að vera settur bestu leikmönnum andstæðinga sinna til höfuðs heldur hefur hann oftar en ekki verið meðal stigahæstu leikmanna Roma bæði í ítölsku deildinni og í Meistaradeildinni. Jón Arnór er oftast í byrjunarliði þessa sterka félagsliðs. Meistaradeild Evrópu í körfubolta er ein af stærstu deildum heims og afrek Jóns því mun meira en fólk almennt gerir sér grein fyrir hérlendis. Helena Sverrisdóttir: Haukar / TCU College Bakvörður 19 ára 180 cm Helena Sverrisdóttir var lykilleikmaður liðs Hauka sem vann alla titla í íslenskum körfuknattleik á árinu sem og í landsliði Íslands þar sem hún vakti mikla athygli erlendra liða og fékk talsvert af tilboðum frá Evrópu. Helena valdi hins vegar að samræma nám og körfubolta og gekk til liðs við sterkt háskólakörfuboltalið í Bandaríkjunum, [v+]http://gofrogs.cstv.com/sports/w-baskbl/tcu-w-baskbl-body.html[v-]Texas Christian College[slod-]. Það sem af er tímabilinu ytra er ljóst að Helena mun láta mikið að sér kveða og á sínum fyrsta ári er hún í byrjunarliði síns liðs sem er frekar sjaldgæft hjá leikmanni á fyrsta ári. KKÍ er stolt að eiga jafn frábæra leikmenn sem Jón og Helena eru. Þau eru góðir fulltrúar innan sem utan vallar. Körfuboltafólk ársins frá árinu 1998: 1998: Helgi Jónas Guðfinnsson og Anna María Sveinsdóttir 1999: Herbert Arnarson og Guðbjörg Norðfjörð 2000: Ólafur Jón Ormsson og Erla Þorsteinsdóttir 2001: Logi Gunnarsson og Kristín Björk Jónsdóttir 2002: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir 2003: Jón Arnór Stefánsson og Signý Hermannsdóttir 2004: Jón Arnór Stefánsson og Birna Valgarðsdóttir 2005: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir 2006: Brenton Birmingham og Helena Sverrisdóttir 2007: Jón Arnór Stefánsson og Helena Sverrisdóttir Oftast valin Körfuboltamaður ársins:* 5 Jón Arnór Stefánsson (2002, 2003, 2004, 2005, 2007) 4 Jón Kr. Gíslason (1987, 1989, 1992, 1993) 3 Helena Sverrisdóttir ( 2005, 2006, 2007) 3 Kristinn Jörundsson (1973, 1975, 1977) 2 Jón Sigurðsson (1976, 1978) 2 Valur Ingimundarson (1984, 1988) 2 Guðmundur Bragason (1991, 1996) 2 Anna María Sveinsdóttir (1994, 1998) 2 Birna Valgarðsdóttir (2002, 2004) * Valið hefur verið tvískipt síðan 1998 en frá 1973 til og með 1997 var aðeins valin einn aðili, karl eða kona, en síðan þá hafa verið valin Körfuboltakarl og Körfuboltakona ársins.