19 des. 2007Klukkan 12 á hádegi í dag verður blaðamannafundur þar sem tilkynnt verður um ráðningu á landsliðsþjálfurum A-liða karla og kvenna. Samningar við Sigurð Ingimundarson og Guðjón Skúlason voru lausir og hefur stjórn sambandsins í samstarfi við landsliðsnefndir karla og kvenna unnið að því að ráða þjálfara á liðin.