19 des. 2007Nú í hádeginu var tilkynnt á blaðamannafundi um landsliðsþjálfara hjá A-liðum karla og kvenna. Sigurður Ingimundarson sem verið hefur þjálfari karlalandsliðsins sl. fjögur ár var ráðinn áfram til næstu tveggja ára. Ágúst Björgvinsson var ráðinn þjálfari A-landsliðs kvenna og kemur nýr í það starf. Ágúst hefur þjálfað yngri landslið kvenna á síðustu árum og einnig þjálfaði hann hið sigursæla kvennalið Hauka sl. 3 ár