9 des. 200716-liða úrslitum í Lýsingarbikar lýkur í dag með nokkrum spennandi leikjum þar sem lið úr Iceland Express deild karla drógust saman. Á Sauðárkróki mætast Tindastóll og Keflavík öðru sinni á rúmri viku. Keflavík sem er taplaust í IEX deildinni marði sigur gegn Tindastóli í síðasta leik og því má búast með hörkuleik í dag. Leikurinn hefst klukkan 17:00 Í DHL höllinni mætast tvö af toppliðum IEX deildar karla KR og Grindavík. Þessi lið tóku þátt í miklum stigaleik í deildinni fyrr í vetur þegar Grindavík hafði betur [v+]http://www.kki.is/mot/1500002684_00020003.htm[v-]109:100[slod-] Leikurinn hefst klukkan 19:15 Í Garðabæ mætast Stjarnan og Njarðvík. Stjarnan vann Njarðvík í Njarðvík í leik liðanna í deildinni [v+]http://www.kki.is/mot/1500002684_00060004.htm[v-]78:81[slod-]. Leikurinn hefst klukkan 19:15 Hamar og ÍR sem léku til úrslita í Lýsingarbikarnum í febrúar sl. mætast að þessu sinni í 16-liða úrslitunum og er eðlilega mikill spenningur fyrir leiknum sem hefst klukkan 19:15 í Hveragerði Síðast en ekki síst má búast við hörkuleik tveggja liða úr 1.deild sem drógust saman í 16-liða úrslit en það er viðureign Þórs frá Þorlákshöfn og Hattar. Það er mikið í húfi fyrir þessi lið að komast í 8-liða úrslit Lýsingarbikarsins. Leikurinn fer fram í Þorlákshöfn og hefst klukkan 19:15