6 des. 2007Hin árlega Firma- og félagakeppni Vals verður að þessu sinni haldin laugardaginn 29. desember 2007. Leikið verður í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda. Leikið verður á tveimur leikvöllum samtímis utan úrslitaleiksins sem verður leikinn á aðalvellinum. Sigurvegarar fá bikar í verðlaun og auk þess verða gullverðlauna „peningar“ að vanda. Leikið verður að mestu eftir venjulegum körfuboltareglum, nema leikurinn verður 2 X 12 mínútur, og klukkan aðeins stöðvuð síðustu 2 mínúturnar í leiknum. Til að tefja leikinn sem minnst í vítaskotum verður aðeins tekið eitt skot, sem gildir 1, 2 eða 3 stig eftir atvikum. Mótið er eingöngu ætlað leikmönnum 20 ára og eldri og ekki heimilt að hafa leikmenn úr 1. deild eða Iceland Expressdeild í liðunum. Þátttökugjald er kr. 20.000.- fyrir hvert lið, sem greiðist í síðasta lagi fyrir fyrsta leik liðs. Innifalið í gjaldinu eru veitingar í VIP-Salnum. Greiða má í gegnum heimabanka inn á reikning: Banki: 0101 - 26 - 3909 kt. 581181 - 0279 Þátttökutilkynningar berist sem fyrst til undirritaðra. Torfi Magnússon tm@ismennt.is Sími: 661 8012 Hannes Birgir Hjálmarsson hbh@talnet.is Sími: 6975999