30 nóv. 2007Í hádeginu verður tilkynnt hverjir hafa þótt skarað fram úr í umferðum 1-8 í Iceland Express deild karla. Sérstök dómnefnd er að störfum og er hún skipuð einstaklingum sem koma hver úr sinni áttinni en eiga það sameiginlegt að sjá meira og minna alla leiki. Nefndin ákvað að velja 3 íslenska leikmenn og 2 erlenda leikmenn hverju sinni í úrvalsliðið. Að auki er besti leikmaður, besti þjálfari og besti dómari umferðanna valinn.