22 nóv. 2007Ettore Messina ítalski þjálfarinn sem er mörgum Íslendingum að góðu kunnur frá því að hann kom til landsins í tvígang til að halda námskeið verður með þjálfaranámskeið í beinni á netinu í vetur. Ettore Messina er einn sigursælasti þjálfari í Evrópu fyrr og síðar. Hann er að þjálfa CSKA Moskva um þessar og hefur m.a. unnið rússneska meistaratitilinn og Meistaradeild Evrópu með því liði. Áður hafði Messina unnið Meistaradeildina ásamt fjölmörgum titlum heima fyrir með ítalska liðinu Kinder Bologna. Í samstarfi við Euroleague mun Ettore Messina vera með þjálfaranámskeið í beinni á netinu í vetur. Byrjað er að taka við skráningum og er áhugasömum þjálfurum bent á að láta þetta tækifæri ekki framhjá sér fara. Allar upplýsingar um þetta frábæra framtak er að finna [v+]http://www.euroleague.net/uleb/euroleague-basketball-institute/on-line-clinic[v-]hér[slod-]