12 nóv. 2007Í kvöld verður einn leikur í Iceland Express deild karla. KR mætir Stjörnunni í DHL-Höllinni. Leikurinn hefst klukkan 19:15 en hann var færður vegna þátttöku KR í Evrópukeppninni. Þeir leika gegn Bandvit BC þriðjudaginn 20. nóvember næstkomandi. KR-ingar eru í þriðja sæti deildarinnar með 4 sigra og 2 töp en Stjarnan hefur unnið 3 og tapað 3 og eru þar með í fjórða til sjöunda sæti deildarinnar. Stjarnan vann góðan útisigur á Njarðvík í síðustu umferð en KR tapaði illa fyrir Keflavík. Það verður áhugavert að sjá hvort Stjarnan nái að halda áfram þar sem frá var horfið í síðasta leik eða hvort KR-ingar nái að rífa sig upp eftir leikinn gegn Keflavík. [v+]http://www.kki.is/mot/mot_1500002684.htm[v-]Staðan í deildinni[slod-].