
11 nóv. 2007Hópbílamót Fjölnis heldur áfram í dag í Grafarvogi. Móti er orðinn árlegur viðburður og hefur tekist vel síðustu ár. Á Hópbílamótinu keppa yngstu iðkendurnir og er leikgleðin í hávegum höfð. Auk körfuboltans eru ýmsir viðburðir í boði fyrir þátttaendur á mótinu. Í gær var krökkunum boðið í bíó og blysför farin á kvöldvöku mótsins. Í dag heldur keppni áfram fram að hádegi en mótinu lýkur með verðlaunaafhendingu og pizzuveislu sem hefst klukkan 14:00. Dagskrá mótsins má sjá á heimasíðu [v+]http://fjolnir.is/[v-]fjölnis[slod-]. Myndir úr leikjum gærdagsins má sjá á [v+]http://www.karfan.is/index.php?option=com_content&task=view&id=4642&Itemid=1[v-]karfan.is[slod-].


