11 nóv. 2007Einn leikur var í dag í Iceland Express deild kvenna. Valsstúlkur náðu sér í fyrstu stig sín í deildinni þegar þær unnu sigur á liði Fjölnis. Fjölnir leiddi eftir fyrsta leikhluta 20-18 en Valur lék betur í 2. leikhluta og var með forystuna í hálfleik. Jafnræði var með liðunum í þriðja leikhlutanum en í þeim fjórða stungu Valsstúlkur af. Þær gjörsigruðu fjórða leikhlutann 6-23 og sigruðu leikinn að lokum með 20 stigum [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002685_7_1[v-]58-78[slod-]. Hafdís Helgadóttir skoraði 20 stig og tók 12 fráköst fyrir Val og Signý Hermannsdóttir tók 10 fráköst og sendi 10 stoðsendingar. Hjá Fjölni var Slavica Dimovska stigahæst með 25 stig.