11 nóv. 2007Í dag verður einn leikur í Iceland Express deild kvenna. Fjölnir tekur á móti Val í Dalhúsum í Grafarvogi. Bæði lið hafa átt erfitt uppdráttar í byrjun mótsins. Valur hefur enn ekki unnið leik í deildinni þrátt fyrir að þeim hafi verið spáð góðu gengi í vetur. Fjölnisstúlkur hafa unnið einn leik en sá leikur var í síðustu umferð gegn Hamri. Nýlega urðu þjálfaraskipti hjá liði Fjölnis en Nemanja Sovic hætti að þjálfar liðið í kjölfar þess að hann gekk til liðs við Breiðablik. Gréta María Grétarsdóttir tók við þjálfun liðsins í stað Sovic. Leikurinn hefst klukkan 16:00 [v+]http://www.kki.is/mot/mot_1500002685.htm[v-]Staðan í deildinni[slod-].