10 nóv. 2007Í gærkvöldi áttust við Houston Rockets og Milwaukee Bucks í deildarkeppni NBA. Gífurlegur áhugi var fyrir leiknum í Kína enda voru þarna að mætast [v+]http://www.nba.com/playerfile/yao_ming/index.html[v-]Yao Ming[slod-] og [v+]http://www.nba.com/playerfile/yi_jianlian/index.html[v-]Yi Jianlian[slod-]. Houston Rockets unnu leikinn og áttu Yao og Yi báðir góðan leik. Yao Ming er fyrir löngu búinn að skapa sér nafn í körfuboltaheiminum og er af mörgum talinn besti miðherji heims í dag. Yi Jianlian var valinn númer 6 af Milwaukee í nýliðavali NBA deildarinnar síðastliðið vor. Hann er talinn gífurlega efnilegur og Yao Ming sagði eftir leikinn að hann teldi að Yi yrði betri leikmaður en hann sjálfur. Þetta er í fyrsta sinn sem þessir leikmenn mætast í NBA deildinni og því var gífurlegur áhugi fyrir þessum leik, sérstaklega í Kína. Leikurinn var sýndur á 19 sjónvarpstöðvum í Kína og það er talið að rúmlega 200 milljónir manna hafi horft á leikinn. Þetta er líklega mesta áhorf á leik í deildarkeppni NBA frá upphafi. Körfubolti er gífurlega vinsæll í Kína og það er líklegt að fleiri góðir leikmenn muni koma þaðan á næstu árum.