7 nóv. 2007Í kvöld verða 2 leikir í Iceland Express deild kvenna. Grindavík tekur á móti Haukum í Grindavík. Haukar hafa unnið 4 leiki í deildinni en tapað einum og Grindavík hefur unnið 3 leiki en tapað einum. Bæði liðin töpuðu fyrir Keflavík. Þetta er því mikilvægur leikur í toppbaráttunni fyrir bæði lið. Á Sunnubrautinni í Keflavík mætast Keflavík og KR. Keflavík hefur enn ekki tapað leik í deildinni. Þær urðu þó fyrir áfalli þegar Bryndís Guðmundsdóttir meiddist á dögunum. KR hefur leikið vel í síðustu leikjum ætla sér stóra hluti í vetur. Fyrir leikina verður mínútuþögn til að minnast Mörtu Guðmundsdóttur fyrrverandi leikmanns Grindavíkur og Keflavíkur en hún lést á mánudag á krabbameinsdeild Landspítalans. Allur ágóði af leik Grindavíkur og Hauka í kvöld og af leik Grindavíkur og Skallagríms á morgun mun renna til fjölskyldu Mörtu. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19:15.