1 nóv. 2007Nú er leikjum kvöldsins í Iceland Express deildinni nýlokið. KR sigraði Njarðvík í DHL-Höllinni með ótrúlegri þriggja stiga körfu frá Helga Má Magnússyni. Njarðvík var tveimur stigum yfir þegar Helgi skaut úr horninu um leið og flautan gall og boltinn ofaní. Lokatölur leiksins voru [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002684_5_1[v-]82-81[slod-]. Sætur sigur hjá KR-ingum og enn einn frábær leikurinn á milli þessarra liða. Keflavík hélt toppsæti deildarinnar þegar þeir sigruðu ÍR-inga á heimavelli sínum [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002684_5_6[v-]110-79[slod-]. Á Sauðárkróki unnu Grindvíkingar heimamenn í Tindastól [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002684_5_4[v-]90-78[slod-]. Skallagrímur vann Fjölni í Borgarnesi [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002684_5_5[v-]88-65[slod-]. Stjarnan sigraði slag nýliðanna þegar þeir lögðu Þór frá Akureyri [v+]http://www.kki.is/leikvarp_tolfraedi.asp?Leikur=1500002684_5_2[v-]85-78[slod-].