26 okt. 2007Í dag klukkan 16:00 verður dregið í bikarkeppni yngri flokka. Dregið verður á skrifstofu KKÍ í Laugardalnum. Bikarkeppni yngri flokka fer fram í eftirfarandi flokkum: Unglingaflokkur karla Unglingaflokkur kvenna Drengjaflokkur Stúlknaflokkur 11. flokkur karla 10. flokkur karla 10. flokkur kvenna 9. flokkur karla 9. flokkur kvenna Ákveðið hefur verið að hefja keppnina töluvert fyrr en áður var gert og er stefnt á að keppni í forkeppni verði leikin á næstu vikum. 16 liða úrslit verða svo 20.-30. nóvember.