26 okt. 2007Í dag var dregið í forkeppni að 16 liða úrslitum bikarkeppni yngri flokka. Forkeppni þarf að halda í 10. og 9. flokki karla. Þátttaka í bikarkeppninni er góð en alls senda 24 félög lið til keppni í bikarkeppninni í vetur. Að auki eru 5 b-lið skráð til keppni. Mest var þátttakan í 10. flokki karla en þar eru 22 lið skráð til leiks. Í 9. flokki karla eru liðin 20. Dregið var í forkeppni að 16-liða úrslitunum í þessum 2 flokkum í dag og eftirfarandi lið drógust saman. 10. flokkur karla: FSu - Valur Keflavík - KFÍ Breiðablik b - Snæfell Tindastóll - Reykdælir Höttur - Þór Ak UMFH - Breiðablik 9. flokkur karla: ÍBV - ÍR b KFÍ - FSu Valur - Breiðablik Þór Þ - Fjölnir Sigurvegarar úr þessum viðureignum munu komast áfram í 16-liða úrslitin sem verða leikin í lok nóvember.