24 okt. 2007Í kvöld verða þrír leikir í Iceland Express deild kvenna. Í Grindavík mætast Grindavík og Valur. Þessi lið eru bæði talin líkleg til að vera í toppbaráttunni í vetur. Leikurinn hefst klukkan 19:15. Í Vesturbænum mætast KR og Hamar. Bæði liðin eru án sigurs í deildinni ennþá en eiga það sameiginlegt að hafa staðið í Íslandsmeisturum Hauka. Það má búast við spennandi leik í DHL höllinni í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20:00. Haukar mæta Fjölni á Ásvöllum klukkan 19:15. Haukar unnu alla titla sem voru í boði í fyrra en Fjölnir eru nýliðar í deildinni. Það er þó ekki hægt að bóka úrslitin fyrr en að leikslokum enda virðist Iceland Express deildin verða mun jafnari í vetur heldur en á síðasta tímabili.