13 okt. 2007Körfuboltinn er í mikilli sókn á Íslandi. Mikill áhugi er fyrir íþróttinni um allt land og er körfuboltinn ein af þeim íþróttagreinum sem leikin er allt landið um kring. Á Austurlandi hefur verið mikill uppgangur og á dögunum var í fyrsta sinn sem kvennalið keppti undir merkjum Hattar. Höttur verður einnig með kvennalið í Íslandsmóti í vetur og eru það tímamót fyrir kvennakörfuna á Austurlandi. Liðið mun taka þátt í 9. flokki kvenna. Annað kvennalið var sett saman úr stúlkum í Minnibolta hjá Hetti og var haldið til Djúpavogs þar sem haldið var æfingamót með liði Sindra frá Hornafirði og strákaliði Hattar. Mikill áhugi hefur verið hjá yngstu krökkunum á Egilsstöðum og það er mikið um að vera á æfingum í Minniboltanum. Það hefur einnig verið fjölgun í flestum aldursflokkum hjá Hetti og það er ljóst að framtíðin er björt í körfunni fyrir Austan.